Fréttir

Aðalfundur FFM 2026

21 sep. 2026

Góðan daginn,

 

Hér með er boðað til næsta aðalfundur FFM. Hann verður haldinn þann 12.nóvemeber n.k í hússkynnum Sjálfstæðisflokksins við Norðurbakka 1, 220 Hafnarfirði

Húsið opnar kl 18:45 og fundur hefst kl: 19:15. Í boði verða veitingar bæði í föstu og fljótandi formi.

Dagskrá aðalfundar verður eftirfarandi:

1) Stjórn gefur skýrslu um starfsemi félagsins
2) Endurskoðaðir reikningar lagðir fram
3) Lagabreytingar

Tillögur stjórnar eru eftirfarandi:

Tillaga að breytingu 7.1. í reglugerð fyrir Sjúkrasjóð F.F.M.:

Sjúkrasjóður skal greiða sjóðsfélaga er verður fyrir langvarandi veikindum eða slysi, sjúkra- eða slysadagpeninga úr sjúkrasjóði, samkvæmt því sem hér greinir, eftir að áunnum veikindarétti á grundvelli kjarasamnings lýkur. Sjóðsfélagi á rétt á greiðslu úr sjóðnum í allt að 365 daga að frádregnum greiðslum er viðkomandi á rétt á frá Tryggingastofnun Ríkisins. Miðað skal við að bætur frá Tryggingastofnun Ríkisins og F.F.M. nemi 80% af meðalmánaðarlaunum síðustu 6 mánuði fyrir slys eða veikindi. Greiðslur falla niður er viðkomandi nær 67 ára aldri, eða fullum bata og verður vinnufær á ný. Sjóðsfélagi á að hámarki rétt á greiðslu sjúkra- eða slysadagpeninga samkvæmt framangreindu í tvígang og skulu þá að lágmarki líða 10 ár frá því greiðslur kláruðust og þar til þær hefjast að nýju.

Tillaga að breytingu á 29.grein.

Aðalfundur skal haldinn fyrir 31. desember annað hvert ár….

Tillaga að breytingu á reglugerð 7.13 fyrir Sjúkrasjóð F.F.M.:

7.13. Almenn/ítarleg heilsufarsskoðun Veittur er styrkur einu sinni á ári fyrir félagsmenn til að fara í almenna heilsufarsskoðun á heilsugæslustöð(eða sambærilegri stofnun), eða hægt er að fara í ítarlega heilsufarsskoðun á heilsugæslustöð(eða sambærilegri stofnun) á fimm ára fresti.

4) Ákvörðun félagsgjalda
5) Kosning formanns, ritara og gjaldkera

Fróði gefur áfram kost á sér sem formaður
Elliði gefur áfram kost á sér sem gjaldkeri
Halldís Hulda gefur áfram kost á sér sem ritari

6) Önnur mál

Hlökkum mikið til að hitta ykkur sem allra flest.

Kv.
Stjórn FFM

Til baka