Sumarhúsið

Staðsetning:

Húsafell, Kiðárbotnum 2

Lýsing:

Húsið er 52 fm að grunnfleti ásamt 23 fm svefnlofti. Svefnaðstaða er fyrir 8-10 manns. Á neðri hæð eru tvö svefnherbergi, annað með hjónarúmi (Stærð: 140x200cm) og hitt með koju (Stærð: 120x200cm og 80x200cm). 4 dýnur eru á svefnlofti. Sængur og koddar eru til staðar sem og barnarúm. Baðherbergi með sturtu. Gott eldhús með blástursofni, uppþvottavél, örbylgjuofni, ískáp með frysti og öllum venjulegum eldhúsbúnaði. Borðbúnaður fyrir 12 manns.
Stofa og borðstofa eru vel búnar húsmunum. Snjallsjónvarp og þráðlaust internet.
Úr stofu er gengið út á rúmgóðan pall með heitum potti. Af pallinum er gengið inn í upphitaða útigeymslu með sturtu- og salernisaðstöðu og þvottavél með þurrkara. Húsinu fylgja gasgrill og garðhúsgögn.

 

Leigutími:

Sumarleiga 2022 er frá 27.maí til 02.sept.

Húsið er leigt í viku í senn á sumrin, frá föstudegi til föstudags

Á veturna er húsið leigt út yfir helgi og/eða staka daga í miðri viku.

 

Verð:

Sumarleiga: 28.000 kr fyrir vikuna

Vetrarleiga: 16.000 kr fyrir helgi. Aukadagur 4.000 kr.

 

Bókanir:

Vinsamlega hafið samband við Halldísi HULDU  á bustadur@ffm.is og setja ffm@ffm.is í CC

Farsími 862-3519

Bókunarstaða

Annað:

Ýmis konar afþreying og þjónusta er í boði í Húsafelli. Þar er m.a. sundlaug, golfvöllur, þjónustumiðstöð, verslun og veitingastaðir. Í nágrenninu er líka margt áhugavert að skoða. Sjá nánar á husafell.is

Heimasíða Húsafells

Kort af Húsafelli

Til baka